Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi við Bitru að morgni fimmtudagsins 11. janúar hét Oddur Þór Þórisson.
Oddur var 21 árs gamall, fæddur 28. maí 1996 og búsettur að Hrafntóftum í Rangárþingi ytra.
Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi segir að Flugbjörgunarsveitin á Hellu hafi staðið fyrir fjölmennu minningarkvöldi að kvöldi sama dags, í húsnæði félagsins, þar sem saman komu félagsmenn og ungmenni úr Árnes- og Rangárvallasýslum undir handleiðslu Sr. Elínu Kristjánsdóttur.
Mánudaginn 17. janúar kl. 17:30 verður samverustund í Selfosskirkju vegna andláts Odds Þórs.