Þýskur karlmaður, ferðamaður á sjötugsaldri, sem fluttur var á sjúkrahús í Reykjavík eftir að bifreið hans og hjólhýsi sem hún dró fuku út af Suðurlandsvegi við Freysnes 1. júní síðastliðinn er látinn.
Kona hans, sem einnig var í bílnum, slasaðist minna og hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi.
Slysið, og tildrög þess, er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi.
Ekki er unnt að veita upplýsingar um nafn hins látna að svo stöddu.
TENGDAR FRÉTTIR:
Tveir fluttir með þyrlu á sjúkrahús