Síðasti menningarviðburður októbermánaðar í Árborg eru tónleikar Iris Kramer Quartet í sal Tónlistarskóla Árnesinga, að Eyravegi 9 á Selfossi, í kvöld klukkan 20:00.
Iris Kramer Quartet er nýstofnaður kvartett frá Þýskalandi en Iris Kramer, trompetleikari og tónskáld er Íslandsvinur í orðsins fyllstu merkingu. Hún bjó og starfaði við kennslu og spilamennsku á Vestfjörðum í nokkur ár og ferðast um landið á hverju ári. Hún hefur komið víða við á sínum tónlistarferli og stofnaði meðal annars fyrsta bigband Þýskalands eingöngu skipað konum.
Kvartettinn hélt sína fyrstu tónleika í Hamborg vorið 2023 og nú er fjöldi spennandi verkefna framundan. Tónlistin er létt og leikandi sveifla undir áhrifum frá íslenskri náttúru, veðurfari og menningu. Kvartettinn flytur að mestu frumsamið efni, en einnig íslenska tónlist.
Sérstakur gestur á tónleikum er Hlín Pétursdóttir Behrens söngkona sem er Sunnlendingum að góðu kunn, hún hóf tónlistarnám sitt við TÁ og kenndi þar um árabil. Þær Iris hafa áður starfað saman í Þýskalandi og er hluti efniskrárinnar úr sameiginlegri smiðju þeirra. Auk Iris og Hlínar koma fram þau Henriette Thorunn á kontrabassa og rafbassa, Jonas Oppermann á píanó og Jan Hauf slagverksleikari.
Tónleikarnir eru styrktir af Þýska sendiráðinu á Íslandi, Íslendingafélaginu í Hamborg og Jazzbüro Baden Württemberg. Aðgangseyrir er 3.500 krónur.