Kl. 14:22 í dag fékk lögreglan tilkynningu um að maður hafi fundist látinn á auðri lóð við Heiðarveg á Selfossi. Lögregla er við störf á staðnum og hefur vettvangi verið lokað á meðan svo er.
Líkið er talið vera af erlendum aðila búsettum á Selfossi.
Vettvangur verður rannsakaður með aðstoð tæknideildar lögreglu eins og venja er þegar líkamsleifar finnast á víðavangi en ljóst er að dánarorsök mun ekki liggja fyrir fyrr en að aflokinni krufningu.
Lögreglan veitir ekki frekari upplýsingar um málið að sinni.