Kl. 11:55 í morgun fékk lögreglan á Suðurlandi tilkynningu um að lík konu hafi fundist á Sólheimasandi, skammt frá göngustíg að flugvélarflakinu þar.
Lögreglumenn fóru þegar á vettvang og í framhaldi af skoðun þeirra á vettvangi var kölluð björgunarsveit til frekari leitar. Um kl. 14:00 fannst lík karlmanns skammt frá þeim stað sem konan lá.
Dánarorsök liggur ekki fyrir og verður ekki ljós fyrr en að lokinni krufningu á líkunum. Vísbendingar eru um að um sé að ræða par sem var að ferðast saman og hefur sendiráð viðkomandi ríkis verið upplýst um stöðuna.
Bíll sem talinn er í leigu parsins er á bílastæði við Sólheimasand og vitað er að hann fór um Hvolsvöll á austurleið kl. 14:55 þann 13. janúar sl.
Tæknideildar- og rannsóknarlögreglumenn eru við vinnu á vettvangi og er ekki að vænta upplýsinga af hálfu lögreglunnar að sinni.