Lind Draumland Völundardóttur hefur verið skipuð í embætti skólameistara Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu, til fimm ára frá 1. ágúst.
Lind Draumland Völundardóttir hefur starfað sem verkefnastjóri félagslífs hjá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu frá 2018 og m.a. unnið þar að mótun lista- og menningarsviðs skólans. Hún hefur kennslureynslu bæði á grunnskóla- og framhaldsskólastigi, samanlagt um 9 ár. Lind var forstöðumaður búningadeildar Íslensku Óperunnar 2011–2015.
Lind er með M.A. í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst, M.Ed. í kennslufræði frá Háskóla Íslands og kennsluréttindi frá Háskóla Íslands, auk diplómu í jákvæðri sálfræði frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Þá hefur hún einnig lokið markþjálfun ACSTH frá Profectus. Lind er að ljúka M.S.-námi í jákvæðri sálfræði við Buckinghamshire New University.
Alls sóttu fimm um embættið. Einn dró umsókn sína til baka.