Listi Regnbogans tilbúinn

Bjarni Harðarson og Guðmundur S. Brynjólfsson skipa efstu sæti á lista Regnbogans í Suðurkjördæmi. Heiðurssæti listans skipar listakonan Hildur Hákonardóttir.

Baráttumál Regnbogaframboðsins í Suðurkjördæmi er að auka veg héraðsins, standa vörð um fullveldi Íslands og berjast fyrir gildum sjálfbærrar þróunar í íslensku samfélagi.

Í tilkynningu frá Regnboganum segir að Regnboginn sé eina framboðið sem setur tafarlausa stöðvun ESB aðlögunar á dagskrá í kosningabaráttunni. Frambjóðendur Regnbogans eru baráttumenn fyrir framgangi atvinnu og menningarlífs á forsendum heimamanna og telja mikilvægt að stuðla að vexti og viðgangi fyrirtækja sem eiga rætur og höfuðstöðvar í héraði.

Þá er framboðinu beint gegn því flokksræði sem ríkt hefur á Íslandi um áratugaskeið og við teljum að íslenskum stjórnmálum muni betur farnast með óháðum stjórnmálamönnum sem ekki eru ekki starfsmenn stjórnmálaflokka heldur þjónar sinna kjósenda milliliðalaust. Regnboginn heitir á kjósendur að setja hag héraðsins og landsins alls ofar flokkshagsmunum.

J-listi Regnbogans í Suðurkjördæmi:

1. Bjarni Harðarson, bóksali
2. Guðmundur S. Brynjólfsson, djákni og rithöfundur
3. Kolbrún S. Hilmarsdóttir, viðurkenndur bókari
4. Kristbjörg Steinunn Gísladóttir, meðferðarfulltrúi
5. Jónas Pétur Hreinsson, iðnrekstrarfræðingur
6. Elín Birna Vigfúsdóttir, háskólanemi
7. Irma Þöll Þorsteinsdóttir, hljóð- og kvikmyndagerðamaður
8. Helga Garðarsdóttir, framhaldsskólakennari
9. Valgeir Bjarnason, fagsviðsstjóri
10. Magnús Halldórsson, smiðjukarl
11. Tryggvi Ástþórsson, varaform. Verkalýðsfélags Suðurlands
12. Eva Aasted, sjúkraliði
13. Sigurlaug Gröndal, verkefnisstjóri hjá Félagsmálaskóla alþýðu
14. Guðmundur Sæmundsson, háskólakennari á Laugarvatni
15. Hlíf Gylfadóttir, framhaldsskólakennari
16. Harpa Rún Kristjánsdóttir, bókmenntafræðinemi og heimasæta
17. Sigríður Jóna Sigurfinnsdóttir, bóndi
18. Helga Ágústsdóttir, hugflæðiráðunautur
19. Óðinn Andersen, starfsmaður Árborgar
20. Hildur Hákonardóttir, myndlistarkona

Fyrri greinVorboðarnir flykkjast til landsins
Næsta greinRáðherrar funduðu í Litlu kaffistofunni