Viðreisn hefur birt framboðslista sinn í Suðurkjördæmi fyrir þingkosningarnar sem fram fara þann 25. september næstkomandi.
Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ, leiðir listann. Í öðru sæti er Þórunn Wolfram Pétursdóttir, sviðsstjóri og doktor í umhverfisfræðum.
Sigurjón Vídalín Guðmundsson, jarðfræðingur og bæjarfulltrúi í Árborg, skipar þriðja sæti listans og Elva Dögg Sigurðardóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur, er í fjórða sæti.
„Listinn er skipaður tuttugu öflugum frambjóðendum. Þau eru á öllum aldri með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu og hafa sameiginlega sýn á framtíð íslensks samfélags,“ segir í tilkynningu frá Viðreisn.
Notast er við svokallaða fléttulista á framboðslistum Viðreisnar þar sem hver frambjóðandi má ekki vera af sama kyni og sá sem skipar sætið á undan.
Framboðslisti Viðreisnar í Suðurkjördæmi:
1. Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ. Reykjanesbær.
2. Þórunn Wolfram Pétursdóttir, sviðsstjóri og doktor í umhverfisfræðum. Hveragerði.
3. Sigurjón Vídalín Guðmundsson, jarðfræðingur og bæjarfulltrúi í Árborg. Selfoss.
4. Elva Dögg Sigurðardóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur. Reykjanesbær.
5. Axel Sigurðsson, matvæla- og búfræðingur. Selfoss.
6. Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, lögmaður. Hveragerði.
7. Arnar Páll Guðmundsson, viðskiptafræðingur. Reykjanesbær.
8. Kristina Elísabet Andrésdóttir, viðskiptafræðingur. Reykjanesbær.
9. Bjarki Eiríksson, sölu- og þjónusturáðgjafi. Hella.
10. Jasmina Crnac, stjórnmálafræðingur. Reykjanesbær.
11. Jóhann Karl Ásgeirsson, háskólanemi. Hveragerði.
12. Kristjana H. Thorarensen, geðtengslafræðingur. Þorlákshöfn.
13. Halldór Rósmundur Guðjónsson, lögfræðingur. Reykjanesbær.
14. Justyna Wroblewska, deildarstjóri í leikskóla og nemi í mannauðsstjórnun. Reykjanesbær.
15. Heimir Hafsteinsson, trésmíðameistari og aðstoðarmaður byggingafulltrúa í Rangárþingi ytra. Hella.
16. Kolbrún M. Haukdal Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Vestmannaeyjar.
17. Alfreð Alfreðsson, leiðsögumaður. Vestmannaeyjar.
18. Guðbjörg Ingimundardóttir, sérkennari. Suðurnesjabær.
19. Hannes Sigurðsson, framkvæmdastjóri. Þorlákshöfn.
20. Ingunn Guðmundsdóttir, viðskiptafræðingur. Selfoss.