Tjón vegna elds sem upp kom í Hellisheiðarvirkjun á föstudag er að mestu bundið við inntaksrými loftræsibúnaðar. Öflug brunahólfun kom í veg fyrir að eldur bærist í loftræsibúnaðinn sjálfan í aðliggjandi rými.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orku náttúrunnar sem starfrækir virkjunina.
Inntaksrýmið er gróft og fátt búnaðar þar inni. Þannig er gólf rýmisins hellulagt. Beðið verður eftir betri tíð með viðgerð á þaki rýmisins, hugsanlega fram á vor. Þá þarf að kanna hvort eldurinn hefur haft áhrif á burð þakbita.
Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn á upptökum eldsins. Mikinn svartan reyk sem lagði frá eldinum virðist mega rekja til þakpappa sem brann og einangrunar á nokkrum rafmagns- og stýristrengjum sem liggja um inntaksrýmið.
Samkvæmt upplýsingum frá ON liggur ekki fyrir nákvæmt fjárhagslegt mat á tjóninu. Virkjunin skilaði fullum afköstum innan sólarhrings frá því eldurinn kom upp.
Jarðhitasýning Orku náttúrunnar, sem rekin er í Hellisheiðarvirkjun, er lokuð vegna viðgerða á gólfi sem skemmdist af slökkvivatni. Stefnt er að því að opna hana að nýju mánudaginn 22. janúar.