Matvælastofnun mælir með að bændur á öskusvæðinu meti aðstæður og setji búfé út ef mögulegt er. Tryggja þarf skepnum hreint drykkjarvatn.
Þó er mikilvægt að hafa það á svæði þar sem auðvelt er að hafa eftirlit með því og smala því saman ef á þarf að halda. Jafnframt þarf að tryggja því aðgang að hreinu drykkjarvatni, góðu fóðri, salti og steinefnum. Varað er við að búfé drekki rigningarvatn úr pollum.
Lítið hefur verið um dauða eða veikindi í búfé. Askan veldur þó særindum í augum og þörf getur verið á að hreinsa augun, gott er að nota úðabrúsa til að úða vatni á augun.
Rannsóknir sem gerðar hafa verið á efnainnihaldi í ösku og vatni benda til að flúorstyrkur sé lítill. Starfsmenn Búnaðarsambands Suðurlands og Landbúnaðarháskóla Íslands voru við sýnatökur í dag af ösku og gróðri og niðurstöður rannsókna á þeim er að vænta í næstu viku.
Sérgreinadýralæknir sauðfjár- og nautgripasjúkdóma hjá Matvælastofnun heimsótti bændur í dag ásamt ráðunauti frá Búnaðarsambandi Suðurlands og héraðsdýralækni.