Vorboðinn ljúfi er mættur í Flóann.
Fyrsta heiðlóa ársins sást nú í morgun í Flóanum, nánar tiltekið við Tjarnabyggð milli Selfoss og Eyrarbakka.
Í fréttatilkynningu frá Fuglavernd kemur fram að lóan sé mætt á tilsettum tíma nú rétt fyrir páska. Þar kemur einnig fram að aðeins tvisvar sinnum hafa lóurnar komið seinna en í dag, 1999 og 2001, en meðalkomudagur þeirra 1998-2017 hefur verið 23. mars.
Lóan er einkennisfugl íslenskra móa og útbreiddur varpfugl um land allt og einnig á hálendinu. Lóan er vaðfugl sem verpur einkum á þurrum stöðum, mólendi og grónum hraunum. Hreiðrið er opin laut milli þúfna eða á berangri, klætt með stráum.
Um helmingur af heimsstofni lóunnar verpur hér á landi, eða um 300.000 pör, svo ábyrgð okkar gagnvart þessum vorboða er mikil og nauðsynlegt að vernda búsvæði hennar.
Vetrarheimkynnin eru í Vestur Evrópu, aðallega á Írlandi en einnig í Frakklandi, Portúgal og á Spáni.