Umhverfisstofnun hefur sett upp loftgæðamæli í Reykholti í Biskupstungum.
Fyrir um ári síðan ályktaði sveitarstjórn að nauðsynlegt væri að koma upp slíkum mæli í sveitarfélaginu en síðustu ár og áratugi hafa loftgæði í sveitarfélaginu verið mjög slæm við vissar aðstæður en engar mælingar hafa verið til staðar.
Í miklu þurrviðri hefur mikið magn jarðefna borist ofan af hálendi og þá sérstaklega af svæðinu í kringum Hagavatn.
Hægt er fylgjast með loftgæðamælinum með því að fara inná www.loftgaedi.is og leita að Reykholti.