Lögðu hald á 158 kannabisplöntur

Kannabisplanta. Mynd úr safni. sunnlenska.is/Egill Bjarnason

Kannabisræktun fannst í íbúð í fjölbýlishúsi á Selfossi í síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi var lagt hald á 158 plöntur og búnað til ræktunar.

Tveir menn voru handteknir vegna málsins en þeir voru látnir lausir aftur að yfirheyrslu lokinni. Málið er áfram til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi.

Fyrri greinEinn milljarður króna í uppbyggingu ferðamannastaða á Suðurlandi
Næsta greinÁrni leiðir Framfaralistann í Flóahreppi