Lögreglumenn fóru í húsleit í gær á vestursvæði umdæmis lögreglunnar á Suðurlandi að undangengnum húsleitarúrskurði frá Héraðsdómi Suðurlands.
Við húsleitina var lagt hald á fíkniefni, lyf, eggvopn og nokkuð magn af heimagerðu áfengi.
Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi sem gefur ekki frekari upplýsingar um það að svo stöddu.