Lögreglan á Suðurlandi leitar að Jónasi Þór. Síðast sást til hans á höfuðborgarsvæðinu.
Jónas er klæddur í bláar stórar gallabuxur, svarta íþróttarskó, svartri hettupeysu með hvítum stöfum á og með rauðan bakpoka á bakinu. Jónas er um 165 cm á hæð, ljóshærður með úfið hár.
Þeir sem hafa séð til ferða Jónasar eða vita hvar hann er að finna eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 112.