Umferðarmál hafa verið fyrirferðarmikil hjá lögreglunni á Suðurlandi undanfarinn sólarhring en 23 ökumenn hafa verið kærðir fyrir hraðakstur frá því um klukkan 7:00 í gærmorgun.
Þrír ökumenn voru kærðir fyrir að nota síma við akstur án handfrjáls búnaðar og þrír ökumenn til viðbótar voru kærðir fyrir ölvun við akstur. Nokkrum ökumönnum var gert að hætt akstri vegna áfengisáhrifa en voru undir viðmiðunarmörkum sem varða ökuleyfissviptingu.
Lögregla hefur haldið úti viðamiklu eftirliti og áætlar að afskipti hafi verið höfð af hátt í 1000 ökumönnum síðasta sólarhringinn þar sem kannað var með ástand þeirra, ökuréttindi ásamt ástandi bifreiða og eftirvagna.
Lögregla mun áfram halda uppi öflugu eftirliti á vegum úti. Ökumenn eru hvattir til að huga vel að ástandi sínu og ökutækja sinna og halda ekki af stað nema að hvort tveggja sé í lagi.
Skemmtanahald í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi hefur farið vel fram það sem af er helgi.