Lögreglustjórinn á Suðurlandi fær jafnlaunavottun

Kjartan tekur við skjalinu úr höndum Davíðs Lúðvíkssonar hjá Vottun ehf. Ljósmynd/Lögreglan

Í dag tók Kjartan Þorkelsson, settur ríkislögreglustjóri, við skjali úr höndum Davíðs Lúðvíkssonar hjá Vottun ehf til staðfestingar á vottun jafnlaunastjórnunarkerfis Lögreglustjórans á Suðurlandi.

Vottunin var gefin út þann 31. desember síðastliðinn en með henni er staðfest að Jafnlaunastjónunarkerfi embættisins sé í samræmi við jafnlaunastaðal IST 85.

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Jafnlaunavottun var lögfest í júní 2017 og fyrirtæki og stofnanir með fleiri en 25 starfsmenn skyldaðir til þess að verða sér út um slíka vottun fyrir árslok 2019. Því var nokkur metnaður af hálfu lögregluembættisins á Suðurlandi að ná því marki – og það tókst á síðasta degi ársins.

Við undirbúning vottuninnar fékk embættið ráðgjöf Guðnýjar Finnsdóttur við þá vinnu sem að mestu hefur verið unnin af svokölluðum jafnlaunahóp embættisins, þeim Birni Inga Jónssyni verkefnisstjóra, Gróu Hermannsdóttur fjármálatjóra og Oddi Árnasyni yfirlögregluþjóni en með virkri þátttöku yfirstjórnar embættisins sem og annarra starfsmanna allra.

Fyrri greinSamið við Sólheima um kolefnislosun
Næsta greinAppelsínugul viðvörun: Ekkert ferðaveður eftir hádegi