Lokað í Dyrhólaey til 12. maí

Umhverfisstofnun hefur ákveðið að loka Dyrhólaey fyrir umferð frá og með deginum í dag til 12. maí. Takmörkuð umferð verður leyfð til 25. júní þegar svæðið verður öllum opið.

Umhverfisstofnun hefur umsjón með friðlandinu Dyrhólaey. Í fréttatilkynningu frá stofnunni segir að á friðlýstum svæðum þurfi að gæta að verndun samhliða því að tryggja almannarétt.

„Mörg svæði eru lokuð hluta úr ári til verndunar dýralífi, önnur eru lokuð allt árið vegna viðkvæmra náttúruminja, umferð um sum svæði er takmörkuð þannig að fólk þarf að tilkynna sig inn á svæði og enn önnur opin allt árið um kring. Umhverfisstofnun hefur heimild til að takmarka umferð inn á svæðið og hefur stofnunin ákveðið síðustu ár hvort og hversu lengi svæðið skuli lokað fyrir umferð almennings til verndunar fuglalífi.

Undanfarin ár hafa verið miklar deilur vegna Dyrhólaeyjar þar sem ólík sjónarmið eru uppi á svæðinu um hvort og hversu lengi loka eigi svæðinu. Þar takast á ýmsir hagsmunir. Í fyrra voru meðal annars unnin skemmdarverk á hliðum á svæðinu.

Umhverfisstofnun tekur ákvarðanir með hagsmuni umhverfis og almannarétt að leiðarljósi. Það er mikilvægt að fólk virði þær ákvarðanir sem teknar eru til verndar náttúru og dýralífi jafnt sem þeim sem tryggja almannarétt og umgengni um svæði.“

Dyrhólaey er opin almenningi nær allt árið en umferð verður stýrt um friðlandið með eftirfarandi hætti á árinu 2012 til verndar fuglalífi:

  • Dyrhólaey verður lokuð frá 5. maí 2012 til og með 12. maí 2012.
  • Á tímabilinu 13. maí 2012 til 25. júní 2012 verður opið inn á Lágey Dyrhóleyjar milli kl. 09.00 til 18.00 en Háey lokuð fyrir akandi umferð. Umferð gangandi almennings er heimil um Lágey og Háey eftir merktum göngustígum milli kl. 09.00 til 18.00 á þeim tíma. Friðlandið er lokað á kvöldin og á nóttunni frá kl. 18:00 til kl. 09:00 á tímabilinu.
  • Frá 25. júní er svæðið opið allan sólarhringinn.

Fyrri greinRóbert sýnir undir stiganum
Næsta greinVorfundur UMFÍ á Selfossi