Þjóðvegur 1 verður lokaður til vesturs í dag við Landvegamót vegna malbikunarframkvæmda.
Malbika á um 1.100 metra langan kafla til vesturs frá Landvegamótum og verður umferð til vesturs beint um Landveg og Sumarliðabæjaveg. Umferð til austurs ekur meðfram vinnusvæðinu þar sem hámarkshraði verður lækkaður niður í 30 km/klst.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá klukkan 8 og fram að miðnætti. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.