Björgunarsveitir voru kallaðar út um miðnætti í gærkvöldi til að aðstoða ökumenn sem voru í vandræðum á Hellisheiði og Þrengslum. Þessum leiðum var lokað fyrir á sama tíma.
„Það var komið aftakaveður og skóf fljótt í skafla þannig að það þótti rétt að kalla út björgunarsveitir til að hjálpa fólki,“ segir Þorsteinn G. Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, í samtali við mbl.is. Um 24 björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðum í nótt og var vaktin löng og erilsöm.
Þorsteinn segir að aðstæður hafi verið sérstaklega erfiðar í Kömbunum og í Þrengslum en þar varð tveggja bíla árekstur. Björgunarsveitin aðstoðaði farþegana við að koma sér sér niður af heiðinni og sinnti einnig bílum sem þar sátu fastir. Í nótt aðstoðaði björgunarsveitin Vegagerðina síðan við að færa til bíla á heiðinni til að auðvelda snjóruðning.
„Það var búið að opna Hellisheiðina laust fyrir klukkan átta og Þrengslin upp úr hálfníu. Síðasta björgunarsveitarfólk var komið heim til sín upp úr níu í morgun,“ segir Þorsteinn.
Lögreglan beinir þeim tilmælum til vegfarenda að gefa sér tíma til ferðalaga og fara ekki af stað á vanbúnum bifreiðum.
Í dag verður víða þokkalegasta veður fram eftir degi en vaxandi suðaustanátt með slyddu og síðan rigningu á sunnan- og vestanverðu landinu síðdegis. Búast má við snjókomu á Hellisheiði, Lyngdalsheiði og Mosfellsheiði síðdegis og fram á kvöld.