Kjörís hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurlands ákveðið að innkalla tímabundið Lúxus-súkkulaðiíspinna þar sem ofnæmis- og óþolsvaldar eru ekki nægjanlega vel merktir á umbúðum vörunnar.
Í innihaldslýsingu á umbúðunum kemur fram að að súkkulaðið innihaldi lesitín, en uppruni lesitíns er úr soja. Soja er á lista yfir ofnæmis- og óþolsvanda og því ber að tilgreina það í innihaldslýsingu. Varan er þó fyllilega skaðlaus þeim sem ekki eru viðkvæmir fyrir sojaafurðum.
Dreifing á vörunni hefur verið stöðvuð uns endurmerkingu á umbúðunum er lokið. Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir sojaafurðum eru beðnir um að farga henni eða skila til framleiðanda gegn endurgreiðslu.