Lýður ráðinn í Laugarás

Lýður Árnason, læknir, hefur hafið störf í Laugarási frá og með 1. október sl. Lýður mun starfa þar með þeim Gylfa Haraldssyni og Pétri Skarphéðinssyni sem þar hafa starfað síðustu áratugi.

Gylfi og Pétur eru að minnka við sig vinnu og munu skipta einni læknisstöðu á milli sín, en tvær læknisstöður eru við heilsugæsluna í Laugarási.

Lýður sagðist í samtali við Sunnlenska vera spenntur yfir því að vera kominn til starfa í Laugarási, hann hafi sótt um fyrir rælni og verið afar ánægður með að hljóta stöðuna. Hann flytur í Tungurnar á næstu dögum.

Lýður er fæddur í Reykjavík 1962 og útskrifaðist sem stúdent úr Menntaskólanum við Sund árið 1982. Hann lauk námi frá Læknadeild HÍ 1990 og fékk réttindi sem heimilislæknir árið 1996. Eftir það starfaði Lýður mestmegnis sem læknir á Vestfjörðum, en einnig í Vestmannaeyjum og á höfuðborgarsvæðinu.

Eitt af aðaláhugamálum Lýðs er kvikmyndagerð og samhliða læknastarfinu hefur hann gert tvær leiknar sjónvarpsmyndir í fullri lengd ásamt nokkrum stutt- og heimildarmyndum.

Fyrri greinIngibjörg og Lilja sterkastar
Næsta greinÓvíst með áhrif kjarasaminga á reksturinn