Lögreglan á Suðurlandi auglýsir eftir Einari Má Einarssyni. Einar sást síðast í sumarbústaðahverfi við Kerið í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Einar er 180 cm á hæð og grannvaxinn. Hann er talinn vera klæddur í gallabuxur og ljósa köflótta skyrtu, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni.
Þeir sem upplýsingar um hvar Einar sé að finna eru beðnir um að hafa samband í síma 444-2000.