Lögreglan á Hvolsvelli lýsir eftir Nubia Silva sem er fimmtán ára.
Nubia er um 160 cm á hæð, dökkhærð og grannvaxin.
Nubia fór frá heimili sínu þann 11. október sl. Ekki er vitað með vissu hvernig hún er klædd. Lögreglan hefur upplýsingar um að hún sé á höfuðborgarsvæðinu.
Þeir sem hafa upplýsingar um ferðir Nubiu eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögregluna á Hvolsvelli í síma 488 4110.