Maður sem velti yfir sig fjórhjóli ofan við Mörtungu í Skaftárhreppi fannst á níunda tímanum í kvöld.
Hann var slasaður á baki og þótti réttast að flytja hann með þyrlu Langhelgisgæslunnar til Reykjavíkur og á Landspítalann.
Maðurinn, sem var einn á ferð í smalamennsku, náði að hringja eftir aðstoð en var ekki viss um nákvæma staðsetningu sína. Leit gekk hins vegar vel og maðurinn fannst.
mbl.is greindi frá þessu