„Þetta er frábært, við erum í skýjunum og þökkum 365 miðlum fyrir það traust, sem fyrirtækið sínir okkur með framleiðslu þáttanna,“ segir Magnús Hlynur Hreiðarsson, fréttamaður Stöðvar 2 á Suðurlandi.
Hann og sonur hans, Fannar Freyr, hafa undirritað samning við 365 miðla um framleiðslu á átta þáttum, sem verða sýndir í júní og júlí í sumar á Stöð 2.
„Þetta verða 25 mínútna þættir þar sem við ætlum að heimsækja skemmtilegt og jákvætt fólk á Suðurlandi og Suðurnesjunum, það fær enginn neikvæður að vera með. Nafnið á þættinum vísar til okkar Fannars en við erum feðgar, hann er elsti strákurinn minn, 23 ára en ég á fjóra stráka. Ég kvíði ekki samstarfinu við Fannar Frey, hann er topp strákur og fagmaður fram í fingurgóma þegar kemur að klippingu og frágang sjónvarpsefnis enda fréttaklippari á Stöð 2. Það á margt eftir að koma mjög óvart í þessum þáttum, því lofum við, án þess að ég vilji fara nánar út í það,“ bætir Magnús Hlynur við.