Mál gegn manni sem grunar var um mansal í Vík í Mýrdal hefur verið fellt niður hvað varðar mansalsákæruna og hefur nú verið sent lögreglu til meðferðar varðandi ætlað brot á atvinnuréttindum útlendinga.
Þetta staðfestir Arnþrúður Þórarinsdóttir, saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara í frétt í Morgunblaðinu.
Ákvörðunin um niðurfellingu mansalsákærunnar er kæranleg til ríkissaksóknara, að sögn Arnþrúðar sem kveðst þó ekki vita til að það hafi verið gert.
Það var í febrúar á þessu ári sem lögreglan á Suðurlandi handtók erlendan karlmann í Vík í Mýrdal vegna gruns um vinnumansal. Var maðurinn, sem var undirverktaki hjá Víkurprjón, grunaður um að hafa haldið tveimur konum með erlent ríkisfang í vinnuþrælkun.
Embætti héraðssaksóknara fékk málið til meðferðar í lok apríl frá lögreglunni á Suðurlandi, en sendi málið aftur til ítarlegrar framhaldsrannsóknar lögreglu. Lögregla greindi svo frá því í lok september að málið yrði sent aftur til embætti héraðssaksóknara á næstu vikum og hefur héraðssaksóknari nú fellt það niður.