Tveir menn eru í haldi lögreglunnar á Suðurlandi eftir að tilkynning barst um látinn mann í heimahúsi í Árnessýslu kl. 08:45 í morgun.
Lögregla og sjúkralið fór þegar á vettvang og staðfestist þá það sem um var tilkynnt.
Tilkynnandinn sjálfur, ásamt öðrum manni sem einnig var á vettvangi, eru í haldi lögreglunnar vegna rannsóknar málsins.
Tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi við rannsókn málsins.
Lögreglan veitir ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.