Margrét María dúxaði í ML

Nýstúdentahópurinn ásamt Jónu Katrínu Hilmarsdóttur, starfandi skólameistara á haustönn og Halldóri Páli Halldórssyni, skólameistara. Ljósmynd/ML

Þrjátíu og sjö nýstúdentar brautskráðust frá Menntaskólanum að Laugarvatni síðastliðinn laugardag.

Bestum heildarárangri nýstúdenta náði Margrét María Ágústsdóttir frá Selfossi en hún var með aðaleinkunnina 9,39 sem er vegið meðaltal allra áfanga sem hún tók við skólann á þriggja ára námsferli sínum.

Semi dux nýstúdenta var Kristján Bjarni Rossel Indriðason frá Ysta-Koti í Rangárþingi eystra með aðaleinkunnina 9,29. Hlutu þau, sem og fjöldi annarra nýstúdenta, viðurkenningar kennara og fagstjóra skólans fyrir afburðaárangur í hinum ýmsu greinum. Nýstúdentar sem setið höfðu í stjórn nemendafélagsins Mímis hlutu einnig viðurkenningu fyrir störf sín.

Fyrri greinGóðar gjafir frá Lions á ljósmæðravaktina
Næsta greinLóðalottó í Árborg á mánudaginn