Margrét Björk Ólafsdóttir hefur verið ráðin á hjúkrunarstjóri á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á heilsugæslustöð Selfoss.
Margrét hefur gengt starfinu í afleysingu í eitt ár en hafði þar áður starfað við deildina sem deildarstjóri frá árinu 2018. Hún starfaði áður sem hjúkrunarforstjóri á Kumbarvogi í sex ár.
Margrét lauk hjúkrunarfræðinámi frá Háskólanum á Akureyri árið 2010 og diplomanámi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands árið 2020.