Máté Dalmay hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Hamars í körfubolta og tekur við af Pétri Ingvarssyni sem lét af störfum á dögunum eftir að hafa stýrt Hamarsmönnum í 2. sæti 1. deildarinnar í vetur.
Samningur Máté við Hamar er til tveggja ára.
„Hópurinn er flottur og ég býst við að halda kjarnanum sem skilaði liðinu í annað sætið í ár, markmiðið er að sjálfsögðu að komast upp um deild,“ Segir Máté, en síðustu ár hefur hann verið aðalþjálfari Gnúpverja með frábærum árangri. Hann kom Gnúpverjum upp um tvær deildir á síðustu þremur árum.
Máté þekkir vel til í Hveragerði sem fyrrum leikmaður Hamars. Síðast lék Máté með Hamri 2009, en það ár fór liðið einmitt upp í úrvaldsdeild.