Verkfræðistofa Suðurlands hefur sinnt verkefni í Noregi síðan um áramót en að sögn Páls Bjarnasonar, framkvæmdastjóra, er stefnt að því að fjölga slíkum verkefnum á árinu.
Verkefnið í Noregi er nálægt Stavangri og er unnið að hönnun á fráveitu- og gatnaframkvæmdum.
Að sögn Páls er talsverð eftirspurn eftir þeirra vinnu þar og því áhugavert að leita eftir frekari verkefnum í Noregi. Sérstaklega þar sem verkefnastaða er óljós hér heima á Íslandi.
Páll sagði að líklega hefðu erlend verkefni verið á milli 10 og 15% af verkefnum verkfræðistofunnar á síðasta ári. Stefnt væri að því að auka það hlutfall á þesu ári.