Um helgina kærði lögreglan á Suðurlandi fimmtán ökumenn fyrir hraðakstur. Sá sem hraðast ók mældist á 146 km/klst hraða og var hann einnig grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna og gat ekki sýnt fram á að hafa gild ökuréttindi.
Að auki voru þrír aðrir ökumenn stöðvaðir án ökuréttinda og fjórir voru kærðir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og/eða áfengis. Þar af var einn aðili með fíkniefni meðferðis.
Ökumaður jeppa var stoppaður og kom í ljós að í farangursrými bílsins var sofandi farþegi. Sá var vakinn og honum ekið heim til sín af lögreglu. Viðkomandi var einnig sektaður fyrir að nota ekki bílbelti.
Fjögur umferðarslys voru tilkynnt en ekki var um að ræða slys á fólki.
Slys varð hjá erlendum ferðamanni, sem rann í hálku í íshellaferð og sótti þyrla Landhelgisgæslunnar hann og kom honum á heilbrigðisstofnun.
Þessa vikuna ætla lögreglumenn á Suðurlandi að viðhafa sérstakt eftirlit með bílbeltanotkun og öryggisbúnaði.