Það er óhætt að segja að fréttir af COVID-19 hafi verið mikið lesnar á sunnlenska.is árið 2020, allt frá því að greint var frá fyrsta smitinu á Suðurlandi þann 5. mars.
Þó var ýmislegt fleira í fréttum, til dæmis opnaði nýtt bakarí á Selfossi, Fjörulallar hreinsuðu Víkurfjöru og óveður og jarðskjálftar gerðu Sunnlendingum óleik. Auk þess er Sunnlendingur vikunnar alltaf vinsæll liður, en tveir slíkir komust á blað þegar taldar voru saman fimmtán mest lesnu greinar ársins hjá okkur.
- Tæplega 300 nemendur Grunnskólans í Hveragerði í sóttkví
- „Ætlum að lækka verðið – og afgreiðsluborðið“
- Fyrsta COVID-19 tilfellið á Suðurlandi
- Stærstur hluti Sunnulækjarskóla í sóttkví
- „Svona ógeð er ekki hægt að láta sjást á hinni frægu Black Beach“
- „Með því verra sem maður hefur séð“
- „Unnið allan sólarhringinn en það dugir ekki til“
- Sunnlenskar raddir syngja í fjarbúð
- Jörð skelfur á Suðurlandi
- Ný verslun Rekstrarlands opnar á Selfossi
- „Að hafa trú á sér er ótrúlega magnað veganesti“
- Ekki halda því fram að ég taki ekki þátt í húsverkunum
- Ég myndi vilja vera Tómas Þóroddsson
- Sigga stóð sig frábærlega á Arnold Classic kraftamótinu
- Handtekinn eftir falskt útkall á Ölfusá