Miðvikudaginn 2. október síðastliðinn fór Forvarnardagur Árborgar fram í sjötta skiptið.
Forvarnardagurinn er haldinn á landsvísu fyrsta miðvikudag október ár hvert en grunnskólarnir þrír í Árborg hafa haldið sérstaklega upp á daginn með því að setja upp dagskrá hannaða af forvarnarteymi Árborgar, deildarstjórum unglingastiga grunnskólanna og Ungmennafélagi Selfoss.
Í ár var dagskráin mjög metnaðarfull eins og fyrri ár en það eru nemendur 9. bekkja skólanna sem eru þátttakendur í deginum.
Nemendur hittust í Bíósalnum á Selfossi í upphafi dags þar sem þeir hlýddu á hvatningarorð frá Alfreð Elíasi Jóhannssyni, þjálfara meistaraflokks kvenna í knattspyrnu og ávarp frá forseta Íslands. Að því loknu var nemendum skipt í hópa, þvert á skóla þar sem þeir fóru á milli stöðva sem allar höfðu mikið og gott forvarnargildi.
Nemendur fengu fræðslu frá lögreglunni, félagsmiðstöðinni Zelsíuz, Björgunarfélagi Árborgar, World Class og CrossFit á Selfossi. Að lokinni dagskrá var nemendum boðið í grillaðar pylsur og fernudrykk.