Miðflokkurinn í Suðurkjördæmi hefur auglýst eftir framboðum á framboðslista til Alþingis fyrir komandi kosningar.
Áhugasamir eru hvattir til að senda tölvupóst á sudur@midflokkurinn.is.
Með fylgi stutt kynning á viðkomandi og hvaða sæti óskað er eftir á framboðslista Miðflokksins í Suðurkjördæmi. Fullum trúnaði er heitið.
Framboð skulu berast fyrir miðnætti laugardaginn 19. október.
UPPFÆRT með breyttu netfangi og breyttum framboðsfresti.