Þingflokkur Miðflokksins hvetur heilbrigðisráðherra til að bregðast nú þegar við þeim fjölmörgu vandamálum sem starfsfólk Landspítalans hefur bent á nýverið.
Þá skorar þingflokkurinn á ríkisstjórnina að láta framkvæma ítarlega stjórnsýsluúttekt á spítalanum, tryggja mönnun í samvinnu við fagstéttir, samþykkja tillögu Miðflokksins um að setja stjórn yfir spítalann til stuðnings og aðhalds með framkvæmdastjórn ásamt því að grandskoða fjármál þessa mikilvægasta sjúkrahúss landsins.
Þingflokkurinn hvetur einnig til þess að heilbrigðisstofnanir og sjúkrahús á landsbyggðinni fái aukin verkefni og létti þannig á Landspítala. Á Akranesi, Selfossi og í Reykjanesbæ svo eitthvað sé nefnt er aðstaða og starfsfólk sem er fullfært til að sinna mörgum af þeim verkefnum sem LSH sinnir í dag.
Þetta kemur fram í ályktun sem Miðflokkurinn sendi frá sér í dag.