Sigurður Daði Friðriksson, björgunarsveitarmaður í Kyndli á Klaustri, synti 40 metra í þungum straumi í Núpsvötum í gærkvöldi til þriggja manna sem fastir voru á eyri í ánni.
„Við skoðuðum öll vöð sem við þekktum í ánni en þau voru öll ómöguleg. Okkur grunaði að eyrin myndi fljóta á kaf því það var mikil rigning. Við byrjuðum á að reyna að vaða til þeirra en það var of mikill straumur. Við vorum búin að kalla í jarðýtu og fluglínutæki en þá getum við skotið línu yfir eyrina með rakettu en við notuðum hana aldrei því mig langaði að prufa að synda, athuga hvort ég hefði það ekki. Við gerðum okkur klár í það en það var bara tilviljun að það var ég en ekki einhver annar sem synti yfir,“ segir Sigurður Daði í samtali við fréttavef Morgunblaðsins en alls tóku 18 manns þátt í björgunarstörfunum.
Sigurður hikaði ekki við að fara útí og synti baksund út á eyrina. „Það var mikill straumur náttúrlega og ég þurfti að fara ofarlega út í því mig rak hratt. Ég náði ákkúrat í land neðst á eyrinni og hefði því ekki mátt fara mikið neðar út í,“ segir Sigurður en að hans sögn voru mennirnir sprækir þegar hann náði til þeirra. „Ég tek línuna yfir og þeir taka í hana með mér og við strekkjum hana yfir eyrina frá landi. Það var bundinn bátur í þá línu og aðra sem er í landi. Svo drógum við bátinn varlega yfir. Ég setti mennina í björgunarvesti og hjálma og skellti þeim í bátinn. Svo vorum við dregnir yfir,“ sagði Sigurður ennfremur í viðtalinu á mbl.is.
Útkallið barst um kvöldmatarleytið og mennirnir voru komnir á land milli klukkan 22 og 23. Björgunarstörfum lauk hins vegar ekki fyrr en rúmlega 6 í morgun þar sem langan tíma tók að koma jarðýtu á staðinn til þess að losa bílinn.