Mikil brennisteinslykt er nú við Sólheimajökul og Jökulsá á Sólheimasandi. Mjög hægur vindur er á svæðinu og verður næstu daga þannig að gas getur safnast fyrir í lægðum.
Að sögn vakthafandi sérfræðings hjá Veðurstofunni eru engar markverðar breytingar á vatna-, jarðskjálfta eða gasmælum Veðurstofunnar á þessu svæði.
Fólki er ráðlagt að halda sig frá lægðum í landslagi og vera ekki nálægt Jökulsá á Sólheimasandi.