Mikil aukning hefur orðið á farþegafjölda hjá Strætó á Suðurlandi en árið 2012 voru farþegar Strætó á Suðurlandi 182.920 talsins.
Þetta er gríðarlega aukning frá því að Strætó hóf akstur á Suðurlandi árið 2009, en þá var gert ráð fyrir að farþegar yrðu um 45.000 á ári.
Í fréttatilkynningu frá SASS segir að farþegafjöldinn hafi því margfaldast á þessum stutta tíma og farið fram úr björtustu vonum. Jafnframt hafi það sýnt sig að samvinnan milli SASS og Strætó bs sé að skila mjög góðum árangri.