Mikill viðbúnaður vegna slyss við Tungufljót

sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Lögreglan á Suðurland fékk tilkynningu klukkan 15:48 um að einstaklingur hefði fallið í Tungufljót, nálægt Geysi.

Mikill viðbúnaður var vegna slyssins og voru straumvatnsbjörgunarhópar frá björgunarsveitum á svæðinu og höfuðborgarsvæðinu kallaðir út, auk þyrlu landhelgisgæslunnar og sjúkrabifreiða frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Í tilkynningu sem lögreglan birti kl. 17:32 kemur fram að búið sé að ná viðkomandi upp úr ánni og var hann fluttur með sjúkrabifreið af vettvangi. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um líðan hans að svo stöddu.

Rannsóknardeild lögreglustjórans á Suðurlandi fer með rannsókn málsins.

Fyrri greinHamar á toppinn í úrvalsdeildinni
Næsta greinBanaslys við Tungufljót