Miklar skemmdir unnar á Lystigarðinum

Ljósmynd/Hveragerðisbær

Unnar hafa verið miklar skemmdir á grasflötinni í Lystigarðinum í Hveragerði með því að aka vespum eða álíka ökutækjum þar.

Nýlega lauk garðyrkjudeild bæjarins við að þökuleggja í sár í garðinum en nú er mikið af þeirri vinnu unnið fyrir gíg. „Ef fram heldur sem horfir þá verður þessi grasflöt endanlega að svaði og mun þá ekki nýtast til hátíðarhalda eins og verið hefur og Lystigarðurinn ekki sama prýði sem við höfum verið stolt af,“ segir í tilkynningu frá Hveragerðisbæ.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem skemmdarverk eru unnin á grasflötinni en líklegast eru þessi þau verstu hingað til.

Málið er á borði lögreglunnar á Suðurlandi og þeir sem hafa einhverjar upplýsingar um hverjir hafa verið þarna á ferðinni eru beðnir um að senda tölvupóst á sudurland@logreglan.is.

Fyrri greinGull í hús og gömul met fuku í Gautaborg
Næsta greinMalbiksstöðin bauð lægst í yfirborðsfrágang