Undirbúningur að fagsýningunni Blóm í bæ sem haldin verður í Hveragerði dagana 24.-26. júní er kominn á fullt skrið. Sýningin hefur fengið milljón króna styrk til frá fjárlaganefnd Alþingis.
Er það í fyrsta sinn sem slíkur styrkur fæst frá fjárlaganefnd.
Umfangsmiklar gatnagerðarframkvæmdir eru í Hveragerði um þessar mundir m.a. unnið að endurnýjun fráveitukerfis í Heiðmörkinni sem reyndist ónýtt.
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri, segir að öllum framkvæmdum verði flýtt með það fyrir augum að bærinn skarti sínu fegursta þegar sýningin verður sett.