Einn Lottóspilari vann tvær milljónir króna í Jókernum í kvöld, þar sem hann var með allar fimm tölurnar réttar. Vinningsmiðinn var seldur á Olís við Arnberg á Selfossi.
Jókertölurnar voru 7 – 7 – 1 – 0 – 1.
Enginn var með fimm tölur réttar í Lottóinu þannig að vinningur kvöldsins, rúmar 14.5 milljónir króna, gekk ekki út. Tveir voru hins vegar með fjóra rétta og bónus. Annar vinningsmiðinn var keyptur í áskrift en hinn á Akureyri.
Lottótölurnar voru 8, 23, 24, 30 og 39 og bónustalan var 3.