Hinn al-íslenski þriðji vinningur í Víkingalottóinu gekk út í gærkvöldi og var vinningsmiðinn seldur í Hveragerði.
Hvorki 1. eða 2. vinningur gengu út í útdrætti vikunnar en einn heppinn miðaeigandi sem keypti miðann sinn í Shellskálanum í Hveragerði fékk 3. vinning og er tæplega tveimur milljónum króna ríkari.
Vinningurinn hljóðar upp á 1.950.410 krónur en tölur kvöldsins voru 8-18-22-25-43-45 og víkingatalan 2.