Einn var með hinn al-íslenska þriðja vinning í Víkingalottói kvöldsins og fær miðaeigandinn tæpar 3,6 milljónir króna í sinn hlut.
Miðinn var seldur í Krambúðinni á Selfossi og er eigandi hans 3.577.990 krónum ríkari. Tölur kvöldsins í Víkingalottóinu voru 1-11-14-17-32-40 og Víkingatalan var 1.
Hvorki fyrsti eða annar vinningur gengu út þessa vikuna og Jókerinn ekki heldur. Fjórir miðahafar voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund krónur í sinn hlut. Einn miðinn var keyptur í lottó-appinu en fjórir voru í áskrift.