Það var risapottur í Lottóinu í kvöld og vinningunum rigndi á Suðurlandi. Vinningsmiðar kvöldsins voru meðal annars seldir á Flúðum, Selfossi og í Hveragerði.
Tveir voru með fimm tölur réttar og hlutu hvor um sig rúmar 35,9 milljónir króna. Annar miðanna var seldur í Samkaup Strax á Flúðum.
Þar með er ekki öll sagan sögð því Jókerinn mætti bæði á Selfoss og í Hveragerði. Tveir voru með 1. vinning í Jókernum og hljóta báðir 2 milljónir króna. Miðarnir voru seldir í Shellskálanum í Hveragerði og á N1 á Selfossi.
Lottótölur kvöldsins voru 8-9-21-27-35 og Jókertölurnar 2-6-7-3-6.