Sveitarfélagið Árborg fékk í vikunni afhentan rafbíl af gerðinni Volkswagen e-Golf en hann var keyptur hjá Bílasölu Selfoss.
Um er að ræða annan rafbílinn í eigu sveitarfélagsins og hann verður notaður sem skrifstofubíll fyrir vatnsveitu, fráveitu og hitaveitu.
„Veituhluti sveitarfélagsins er aðili að Samorku sem eru samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi. Samtökin skrifuðu nýverið undir yfirlýsingu þess efnis að orku og veitustarfsemi á Íslandi verði kolefnishlutlaus árið 2040. Með nýjum rafbíll er tekið skref í átt að því að minnka kolefnisspor sveitarfélagsins en unnið verður í takt við fyrrnefnda yfirlýsingu á næstu árum,“ segir Sigurður Þór Haraldsson, deildarstjóri vatns- og hitaveitu hjá Selfossveitum.