Barn var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík eftir miðjan dag í gær en það hafði fest sig í stiga í sundlauginni á Flúðum og misst þar meðvitund.
Í dagbók lögreglunnar á Suðurlandi kemur fram að nærstaddir hafi með snarræði náð að losa barnið og nýtt skyndihjálparkunnáttu sína til þess að koma því til meðvitundar á ný.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er barnið nú á sjúkrahúsi en frekari upplýsingar um líðan þess liggja ekki fyrir.