Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur.
Í dag hækkaði lágmarksverð 1. flokks mjólkur til bænda um 6,60%, úr 104,96 kr./ltr í 111,89 kr./ltr.
Næstkomandi mánudag mun svo heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara, sem nefndin verðleggur, hækka almennt um 4,47%.
Í tilkynningu frá matvælaráðuneytinu segir að verðhækkunin sé til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu og vinnslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun, sem gerð var í desember síðastliðnum. Frá 1. desember hafa gjaldaliðir í verðlagsgrundvelli kúabús hækkað um 6,60%, að meðtalinni verðhækkun áburðar sem jafnan er reiknuð í júní.
Á sama tímabili hefur vinnslu- og dreifingarkostnaður afurðastöðva hækkað um 2,14% og er það grundvöllur hækkunar heildsöluverðs auk hækkunar á afurðaverði.
Verðákvörðun verður tekin til endurskoðunar í maí þegar fyllri skoðun vafaatriða, er tengjast sérstökum stuðningi sem greiddur var til móts við áburðarverðhækkanir, liggur fyrir.